Question
Hvers vegna fær maður heilakul þegar maður borðar eða drekkur eitthvað kalt?
Asked By
Reynir Jóhannsson
Jenný Sigríðardóttir
Jenný Heimisdóttir
Halldór Magnússon
Answer
Að finna fyrir verk í enni þegar maður borðar eða drekkur eitthvað kalt hefur stundum verið kallað heilakul (e. brain-freeze). Þetta þýðir þó ekki að heilinn sé að kólna, hvað þá frjósa. Líklega væri nærri lagi að kalla þetta frekar íshausverk (e. ice-cream headache) þar sem algengast er að finna fyrir verknum þegar maður hámar í sig ís.Talið er að um einn af hverjum þremur fái íshausverk. Verkurinn kemur yfirleitt fram nokkrum sekúndum eftir að maður hefur borðað mjög hratt eitthvað kalt, eins og ís, frostpinna eða drukkið ískaldan drykk. Verkurinn kemur oftast fram í miðenninu, en getur þó einnig verið í gagnaugum og augntóftum. Hann stendur oftast yfir í 30-60 sekúndur, en venjulega fer að draga úr honum 10-20 sekúndum eftir að hann hefst. Í einstaka tilfellum getur verkurinn þó varað í 2-5 mínútur.

Þegar eitthvað mjög kalt kemst í snertingu við efri góminn í munninum nema taugaendar sem þar eru kuldann og senda sársaukaboð til þrenndartaugarhnoða (e. trigeminal ganglia) í heila. Þetta veldur því að þrenndartaugin sendir boð til ennis og annarra staða í höfuðkúpu um að víkka út slagæðar sem liggja á þessum svæðum. Við víkkun æðanna eykst skyndilega blóðstreymið um þær og veldur það verk í enninu og efri hluta höfuðs, en ekki í gómnum þar sem kuldans varð vart. Þetta er sambærilegt við svokallaðan staðvilluverk (e. referred pain), líkt og þegar einstaklingur finnur fyrir verk í vinstri handlegg þegar hann er í raun að fá hjartaslag. Þess má geta að svokallaðar sprengitöflur og víagra hafa samskonar æðavíkkandi áhrif og hér var lýst.
Hægt er að minnka líkur á því að fá íshausverk með því að gæta þess að mjög kaldir hlutir snerti ekki efrigóminn í miklu magni. Til dæmis með því að gæta þess að borða ís og frostpinna ekki of hratt. Gott ráð til þess að losna fyrr við íshausverk er að þrýsta tungunni upp í góminn. Tungan hitar þá gómsvæðið sem veldur því að æðar í höfðinu dragast aftur saman og verkurinn hverfur.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað er mígreni? eftir Magnús Jóhannesson
- Hvað gerir hjartað og hvað veldur hjartaáfalli? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur
- Af hverju fær maður kul í tennurnar? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur
Um þessa spurningu
Dagsetning
Published12.12.2006
Category:
Keywords
kuldi kul enni höfuðverkur hausverkur ís gómur taugar verkir staðvilluverkur
Citation
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvers vegna fær maður heilakul þegar maður borðar eða drekkur eitthvað kalt? “. The Icelandic Web of Science 12.12.2006. http://visindavefur.is/?id=6431. (Skoðað 5.9.2010).
Author
Þuríður Þorbjarnardóttir




