Question

Hvaða völd hefur forseti Bandaríkjanna?

Asked By

Birgir Steinn Steinþórsson

Answer

Völd forseta Bandaríkjanna eru mikil, eins og nærri má láta. Bandaríkin eru á alla mælikvarða leiðandi afl í heiminum. Vegna hernaðar- og efnahagsstyrks hafa þau mikil áhrif innan alþjóðastofnana og því skiptir miklu máli hver situr í embætti forseta. Að sama skapi fer embætti Bandaríkjaforseta með mikil völd heima fyrir og hefur ríkt hlutverk innan bandarísku stjórnskipunarinnar.

Forsetinn er þjóðkjörinn og skipar ríkisstjórn, embættismenn og mikinn fjölda opinberra starfsmanna eftir að hann tekur við. Völd forsetaembættisins eru margvísleg, allt frá því að hafa vald til að náða menn yfir í að vera yfirmaður heraflans. Í 2. gr. stjórnarskrár Bandaríkjanna eru flestar valdheimildir forsetans taldar upp en einnig er fjallað um neitunarvald hans gagnvart löggjöf sem er í 1. gr. stjórnarskrárinnar:
  • Æðsti handhafi framkvæmdarvalds
  • Neitunarvald gagnvart löggjöf frá þinginu
    • Hafni forseti löggjöf frá þinginu fer hún aftur til öldungardeildar þingsins sem verður þá að samþykkja hana með auknum meirihluta, 2/3 hluta atkvæða, til þess að hún öðlist gildi
  • Yfirmaður heraflans
    • Veitir forsetanum vald yfir öllum herafla Bandaríkjanna sem felur meðal annars í sér að forsetinn getur beitt sér fyrir hernaðaraðgerðum í garð annarra ríkja
  • Skipunarvald
    • Skipar meðal annars ríkisstjórn og skal ráðfæra sig við viðkomandi ráðherra áður en hann tekur ákvarðanir
    • Skipar hæstaréttardómara
    • Skipar mikinn fjölda embættismanna en þúsundir embættismanna eru skipaðir þegar nýr forseti tekur við
  • Getur kallað saman þingið í sérstökum aðstæðum
  • Náðunarvald
    • Forsetinn hefur vald til að náða dæmda sakamenn, með þeirri undantekningu að hann getur ekki náðað þá forseta, varaforseta og embættismenn sem þingið hefur ákært samkvæmt heimild í 4. gr. stjórnarskrárinnar (e. impeachment)
  • Gerir milliríkjasamninga og skipar sendiherra
    • Milliríkjasamningar eru háðir því að 2/3 hlutar öldungardeildarinnar samþykki

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Heimildir:
  • The American Presidency – Origins and Development 1776-2002. Sidney M. Miklis and Michael Nelson. CQ Press. 2003.
  • United States Constitution

Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Published29.10.2009

Citation

Árni Helgason. „Hvaða völd hefur forseti Bandaríkjanna?“. The Icelandic Web of Science 29.10.2009. http://visindavefur.is/?id=47540. (Skoðað 5.9.2010).

Author

Árni Helgason



Search