Question
Hvar á himninum eru Fjósakonurnar og Sjöstirnið?
Asked By
Sigrún Björgvinsdóttir
Answer
Fjósakonurnar tilheyra stjörnumerkinu Óríon. Þær eru þrjár bjartar stjörnur sem mynda svo til beina línu við miðju merkisins og eru oft nefndar Belti Óríons á erlendum málum. Þessar stjörnur heita (talið frá vinstri til hægri) Alnitak, Alnilam og Mintaka og eru þær allar talsvert stærri, bjartari og heitari en sólin okkar.Úr belti Óríons hangir síðan sverð Óríons. Best er að finna sverðið með því að draga beina línu niður frá stjörnunni í miðju beltisins (Alnilam). Stjarnan í miðju sverðsins er afar áhugaverð því hún er ekki ein eiginleg stjarna heldur heil stjörnuverksmiðja. Þetta er stjörnuþoka, Sverðþoka Óríons, þar sem nýjar stjörnur verða til úr efnismassanum í kring. Í litlum stjörnusjónauka er hægt að sjá í grænleitri þokunni fjórar stjörnur sem mynda svokallaða trapisu. Sverðþokan er í um 1500 ljósára fjarlægð.

Sjöstirnið tilheyrir Nautinu og er líklega ein þekktasta stjörnuþyrping himinsins enda sést það auðveldlega með berum augum. Sjöstirnið hefur líka stundum verið nefnt Systurnar sjö en fræðiheiti þess er M45. Sjöstirnið er ein bjartasta og nálægasta lausþyrpingin og inniheldur meira en 3000 stjörnur. Þyrpingin er í um 425 ljósára fjarlægð, aðeins 13 ljósár í þvermál og inniheldur nokkur hundruð stjörnur, en fáar þeirra eru sýnilegar með berum augum. Stjörnurnar í þyrpingunni eru aðeins um 100 milljón ára gamlar og því mjög ungar samanborið við þau 4500 milljón ár sem sólin okkar hefur verið til.
Í bókinni Íslenskur stjörnuatlas eftir Snævarr Guðmundsson má fræðast meira um þessi fyrirbæri og stjörnumerkin sem þau eru í. Einnig má finna frekari upplýsinga um þessi fyrirbæri á Stjörnufræðivefnum.
Mynd: Unnin upp úr stjörnufræðiforritinu Starry Night Enthusiast.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Published3.2.2005
Citation
Sævar Helgi Bragason. „Hvar á himninum eru Fjósakonurnar og Sjöstirnið? “. The Icelandic Web of Science 3.2.2005. http://visindavefur.is/?id=4741. (Skoðað 7.9.2010).
Author
Sævar Helgi Bragason



