Question

Hvað er vetni?

Asked By

Steinunn Marín, f. 1991
Álfheiður Björk, f. 1991
Bryndís Þórólfsdóttir, f. 1991

Answer

Vetni er frumefni og hefur efnatáknið H. Sætistala þess í lotukerfinu er 1 og það er léttasta frumefnið. Þegar það binst súrefni myndar það vatn sem við táknum með H2O. Vetnisgas er táknað með H2 en þar eru tvær vetnisfrumeindir bundnar saman.

Eingöngu 0,01% af lofthjúpi jarðar er vetni og af massa jarðskorpunnar eru 0,9% vetni, að mestu bundið í efnasamböndum. Vetni er algengasta frumefnið í geimnum.

Hægt er að lesa meira um vetni á Vísindavefnum meðal annars í svörum við spurningunum:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Published16.4.2004

Keywords

vetni frumefni

Citation

JGÞ. „Hvað er vetni?“. The Icelandic Web of Science 16.4.2004. http://visindavefur.is/?id=4144. (Skoðað 5.9.2010).

Author

JGÞ



Search